Fann þetta bara...
Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta
fólkið, svo að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins
þann sem hentar okkur. Kannski opnast dyr hamingjunnar á einum stað
um leið og þær lokast á öðrum, en oft störum við svo lengi á lokuðu
dyrnar að við sjáum ekki hinar sem hafa opnast. Kannski er bestu
vinurinn sá sem þú getur rólað þér með á veröndinni án þess að
segja orð og síðan gengið í burtu og liðið eins og þú hafir átt
eitt besta samtal ævi þinnar. Kannski er satt að við vitum ekki
hvað við höfum átt þangað til að við missum það, en það er líka
satt að við vitum oft ekki hvers við höfum saknað fyrr en við
öðlumst það. Það eitt að gefa einhverjum alla okkar ást tryggir
ekki að viðkomandi elski okkur á móti. Ekki búast við ást í skiptum
fyrir ást; bíddu þangað til ástin vex í hjörtum annarra og ef það
gerist ekki, skaltu þakka fyrir að ástin hafi vaxið og dafnað í
þínu hjarta. Kannski tekur það einungis mínútu að brjóta einhvern
niður, klukkutíma að láta sér líka við einhvern og einn dag að
verða ástfangin af einhverjum, en það getur tekið lífstíð að gleyma
einhverjum. Kannski ættir þú að reyna að ná í einhvern sem fær þig
til að brosa, vegna þess að eitt bros getur dimmu í dagsljós
breytt. Ekki fara eftir útliti, það getur blekkt. Ekki fara eftir
auðævum, þau geta horfið. Finndu einhvern sem fær hjarta þitt til
að brosa. Þegar þú fæddist varstu grátandi og allir í kringum þig
voru brosandi. Lifðu þannig að þegar þú deyrð verðir þú brosandi og
allir í kringum þig grátandi.